Um Okkur
Velkomin(n) í Troupe – lifandi vettvang innan skapandi greina.
Troupe tengir saman skapandi, sjálfstætt starfandi fólk/þjónustuaðila við þá sem vilja gera viðburði sína eftirminnilega – hvort sem um ræðir veislur, hátíðir eða önnur tilefni þar sem skapandi kraftar skipta máli.
​
Við köllum þetta hæfileikaríka og frumlega fólk Troupe-ara – einstaklingar/þjónustuaðilar sem bjóða fram hæfileika sína og þjónustu innan skapandi greina á vettvangi okkar, svo sem í tónlist, ljósmyndun, uppistandi, veislustjórnun og svo lengi mætti telja.
Hugmyndin að baki Troupe
Troupe varð til út frá reynslu þeirra sem þekkja bæði gleðina og áskornarnirnar sem fylgja sköpuninni - að sjá hugmynd vakna til lífs og halda í trúna þegar hún er enn óséð.
​
Við vildum skapa vettvang sem:
​
-
Gerir skapandi fólki kleift að bjóða fram þjónustu sína,
-
Auka sýnileika sína, og
-
Nálgast ný tækifæri.
Á sama tíma fá þeir sem leita að skapandi krafti tækifæri til að finna réttu manneskjuna/þjónustuna til að breyta augnabliki í upplifun.
​
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða hefur þegar byggt upp feril innan skapandi greina, er Troupe hér til að hjálpa þér að deila þinni sköpum með þeim sem leitast eftir skapandi kröftum.
​
Hér fá hæfileikar rými, tengsl verða til og ný tækifæri vakna – allt á einum stað.
Hvað við stöndum fyrir
Við hjá Troupe viljum meina að sköpun tengi okkur öll.
​
Við viljum byggja upp samfélag þar sem skapandi kraftar fá að flæða frjálslega, þar sem traust, virðing og góð samskipti eru í forgrunni.
​
Markmið okkar er að:
-
Einfalda leiðina að skapandi þjónustu.
-
Styðja við sjálfstætt starfandi fólk innan skapandi greina.
-
Gera samfélag sköpunar sýnilegra og aðgengilegra.
-
Skapa vettvang sem tengir fólk og opnar dyr að nýjum tækifærum.
Troupe – meira en vettvangur
Troupe er meira en staður til að bóka þjónustu - við erum vettvangur sem tengir saman skapandi fólk og þá sem vilja upplifa sköpunina.
​
Við trúum því að þegar fólk kemur saman í kringum sköpun, kveikni eitthvað stærra - einhverskonar orka sem hreyfir við sálinni og snertir það sem liggur dýpra en hugsun, og viljum við að þessi orka sé öllum opin - og þess vegna er Troupe til.
​
