Persónuverndarstefna Troupe
1. Um Troupe og tilgang stefnunnar
Við hjá Troupe leggjum mikla áherslu á að vernda persónuupplýsingar notenda okkar og samstarfsaðila. Tone ehf. rekur markaðstorg innan skapandi greina, þar sem notendur geta tengst skapandi einstaklingum („Troupe-urum“) og bókað þjónustu þeirra á einfaldan og öruggan hátt.
​
Þessi stefna lýsir:
​
-
hvaða persónuupplýsingar við vinnum.
-
í hvaða tilgangi við vinnum þær.
-
hve lengi gögn eru varðveitt.
-
og hvaða réttindi þú hefur gagnvart okkur.
Stefnan tekur til vinnslu þar sem Tone ehf. er ábyrgðaraðili samkvæmt persónuverndarlögum nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Þegar Troupe vinnur gögn fyrir hönd Troupe-ara (t.d. varðandi bókanir eða samskipti) gilda sérstakir vinnsluskilmálar (DPA) milli aðila.
2. Hvaða gögn við vinnum og hvers vegna
Við vinnum eingöngu þau persónugögn sem eru nauðsynleg til að veita og reka þjónustuna, tryggja örugg og skilvirk samskipti og bæta upplifun notenda.
​
a) Notendur vettvangsins
​
Þegar þú stofnar aðgang, skoðar þjónustuframboð eða bókar Troupe-ara vinnum við:
​
-
Nafn, netfang og símanúmer.
-
Aðgangsupplýsingar (notendanafn, lykilorð – dulkóðað).
-
Bókunarupplýsingar og samskiptagögn.
-
Tæknileg gögn (t.d. IP-tölu, vafra og tæki).
-
Greiðslugögn - ef þess er krafist, í ferli bókunar á þjónustu Troupe-ara (ekki hrá kortanúmer) .
Þessi vinnsla er nauðsynleg til að:
​
-
Veita þér aðgang að þjónustunni.
-
Vinna úr bókunum, greiðslum og samskiptum.
-
Tryggja öryggi, og viðhalda áreiðanleika og stöðugleika vettvangsins.
b) Troupe-arar (þjónustuaðilar)
Þegar þú skráir þig sem Troupe-ari vinnum við:
​
-
Nafn, tengiliðaupplýsingar og prófílmynd (ef sett inn).
-
Upplýsingar um starfsemi, þjónustu, staðsetningu og verðskrá.
-
Reikningsnúmer, kennitölu og greiðslusögu.
-
Bókanir og samskipti við viðskiptavini.
-
Tæknileg notkunargögn (t.d. innskráningu og eðlilegar aðgerðir í kerfum okkar).
Þessi vinnsla er nauðsynleg til að:
​
-
Reka vettvanginn.
-
Birta framboð og tengja viðskiptavini við Troupe-ara.
-
Framkvæma greiðslurukkanir og senda tilkynningar.
c) Samskipti og þjónustubeiðnir
​
Ef þú sendir okkur fyrirspurn eða leitar aðstoðar vinnum við:
-
nafn, netfang og innihald samskipta, til að geta svarað beiðninni og veitt viðeigandi þjónustu.
3. Lagagrundvöllur vinnslu
Vinnsla persónuupplýsinga hjá Troupe byggir á eftirfarandi lagagrundvelli samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR):
​
-
Samningur – til að geta rekið vettvanginn, unnið úr bókunum, greiðslum og veitt þjónustu í samræmi við samning við notanda.
-
Lögmætir hagsmunir – til að tryggja öryggi, bæta notendaupplifun og þróa og viðhalda þjónustunni.
-
Lagaskylda – til að uppfylla skyldur samkvæmt lögum, svo sem varðveislu reikningsgagna.
-
Samþykki – þegar vinnsla byggir á frjálsu og upplýstu samþykki notanda, t.d. fyrir markpósti eða notkun vafrakaka sem ekki eru nauðsynlegar.
4. Hverjir fá aðgang að gögnunum
Við deilum upplýsingum einungis þegar það er nauðsynlegt og á lögmætum grundvelli:
​
Aðili Hlutverk Tilgangur
​​
Troupe-arar Þjónustuaðilar Til að vinna úr bókunum og hafa samband við viðskiptavin
​
Greiðsluþjónustur (t.d. Sjálfstæðir Greiðslumeðhöndlun og uppgjör
Adyen, Teya) ábyrgðaraðilar
Tækniaðilar og Undirvinnsluaðilar Rekstur, öryggi og viðhald vettvangsins
hýsingarþjónustur
​
Yfirvöld eða eftirlitsstofnanir Lögbundnir aðilar Ef skylt er samkvæmt lögum eða dómsúrskurði
​
Allir samstarfsaðilar Troupe starfa samkvæmt trúnaðarsamningum og uppfylla kröfur GDPR.
​
5. Vafrakökur og mælingar
Troupe notar vafrakökur („cookies“) til að:
​
-
tryggja eðlilega virkni vefsins,
-
bæta upplifun notenda,
-
framkvæma greiningar á notkun vettvangsins.
Við notum aðeins nauðsynlegar vafrakökur. Tölfræði - eða markaðskökur eru aðeins virkar ef þú samþykkir þær sérstaklega. Við seljum aldrei gögn til þriðja aðila.
​
Þú getur stillt eða afturkallað samþykki þitt fyrir kökum í „Kökustillingum“ neðst á vefnum.
6. Flutningur gagna utan EES
​Troupe mun almennt halda vinnslu og geymslu persónuupplýsinga innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).Ef nauðsyn krefur að flytja gögn eða veita aðgang að þeim utan EES, tryggir Troupe að slíkur flutningur byggist á gildum lagagrundvelli, svo sem staðluðum samningsákvæðum (SCC) eða persónuverndarramma ESB–Bandaríkjanna.
7. Geymslutími
Við varðveitum persónuupplýsingar aðeins svo lengi sem nauðsyn krefur:
​
-
Reikningsgögn: 7 ár samkvæmt lögum.
-
Notendaupplýsingar: allt að 24 mánuði eftir að aðgangi er lokað, nema lög mæli fyrir um lengri geymslu.
-
Samskipti eða þjónustubeiðnir: allt að 12 mánuði eftir afgreiðslu erindis.
Eftir þann tíma eru gögn annaðhvort eydd eða nafnlaus.
8. Öryggi gagna
Við tryggjum öryggi gagna með eftirfarandi ráðstöfunum:
​
-
Dulkóðun á gögnum í flutningi og geymslu.
-
Aðgangsstýringum og öruggri auðkenningu notenda.
-
Reglulegum öryggisafritum og prófunum.
-
Skýrum verkferlum fyrir meðferð öryggisbrotamála.
-
Þjálfun starfsfólks í meðferð persónuupplýsinga.
9. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
​
-
Fá aðgang að þeim gögnum sem við höfum um þig.
-
Fá leiðréttar rangar eða úreltar upplýsingar.
-
Krefjast eyðingar gagna.
-
Takmarka eða andmæla vinnslu.
-
Fá gögn afhent á flutningshæfu formi.
-
Kalla til baka samþykki hvenær sem er.
Beiðnir um að nýta þessi réttindi skal senda á troupe@troupe.is. Ef þú telur að vinnsla fari gegn lögum hefurðu einnig rétt á að leita til Persónuverndar, Rauðarárstígur 10, 105 Reykjavík – www.personuvernd.is
​
10. Breytingar á persónuverndarstefnu
Við getum uppfært þessa stefnu ef breytingar verða á lögum eða þjónustu. Uppfærð útgáfa verður birt á vef okkar og tekur gildi við birtingu.
11. Hafa samband
Ef þú hefur spurningar, óskir eða athugasemdir varðandi persónuverndarstefnu okkar, geturðu haft samband við okkur:
​
Tone ehf. (rekstraraðili Troupe)
- troupe@troupe.is
- Sími: 773-2774
- Túnbrekka 18, 355 Ólafsvík
- KT: 411225-0620
12. Traust er kjarninn í okkar starfsemi
Troupe vinnur aðeins með þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru – á öruggan, ábyrgan og heiðarlegan hátt.
