Skilmálar
1. Um Troupe
Velkomin(n) í Troupe – lifandi vettvang innan skapandi greina.
​
Troupe tengir saman skapandi, sjálfstætt starfandi fólk og þjónustuaðila við þá sem vilja gera viðburði sína eftirminnilega – hvort sem um ræðir veislur, hátíðir eða önnur tilefni þar sem skapandi kraftar skipta máli.
​
Við köllum þetta hæfileikaríka og frumlega fólk/þjónustuaðila Troupe-ara – einstaklingar/þjónustuaðilar sem bjóða fram hæfileika sína og þjónustu innan skapandi greina á vettvangi okkar, svo sem í tónlist, ljósmyndun, uppistandi, veislustjórnun svo lengi mætti telja.
​
Undir flipanum „Bóka“ er hægt að skoða allar þær skapandi greinar og þjónustuflokka sem Troupe býður upp á – auðveld leið til að finna rétta Troupe-arann fyrir hvert tilefni.
​
Við í Troupe höfum gert það einfalt og notendavænt að skoða framboð, senda fyrirspurn og bóka þjónustu skapandi fólks.
​
Við trúum því að það eigi að vera einfalt að tengjast skapandi fólki og gefa því tækifæri til að láta hæfileika sína blómstra.
​
Vettvangur okkar býður upp á þægilegt og auðvelt bókunarkerfi.
​
Með Troupe getur þú komið hæfileikum þínum og þjónustu þinni á framfæri, - og fundið hinn rétta Troupe-ara fyrir næsta viðburð, tilefni eða verkefni – allt á einum stað.
​
Með því að nota Troupe samþykkir þú þessa skilmála og staðfestir að Troupe sé milliliður vettvangsins. Við gerum bókanir mögulegar, en gæði á frammistöðu Troupe-ara eru alfarið á þeirra ábyrgð.
​
Markmið okkar er að gera það einfalt, aðgengilegt, ánægjulegt og sjálfsagt að tengjast skapandi fólki – því sköpun er það sem tengir okkur öll.
2. Skilgreiningar
-
Troupe: Lifandi vettvangur sem auðveldar tengingu, viðskipti og bókanir innan skapandi greina.
-
Troupe-arar: starfandi einstaklingar/fólk/þjónustuaðilar innan skapandi greina sem bjóða fram þjónustu sína á Troupe.
-
Notandi: Einstaklingur eða fyrirtæki sem notar Troupe til að leita að, hafa samband við og bóka Troupe-ara.
3. Aðgangur og skráning
Til að nota þjónustu Troupe þarftu að veita réttar upplýsingar (svo sem nafn, netfang og aðrar nauðsynlegar upplýsingar). Virkni og möguleikar ráðast af því hvort þú ert Troupe-ari eða notandi.
Við gætum óskað eftir frekari upplýsingum áður en prófíll er virkjaður, en annars er prófíll virkjaður að lokinni staðfestingar skráningar.
4. Gjöld og greiðslur
Gjöld ráðast af þeirri þjónustu sem þú notar og koma fram í gildandi verðskrá á vef Troupe.
Með notkun samþykkir þú að greiða öll gjöld í samræmi við skilmálana.
​
Greiðslur fara fram með þeim greiðslumátum sem Troupe býður upp á. Þú heimilar Troupe að innheimta gjöld, meðal annars með skuldfærslu á greiðslukort eða annarri aðferð eins og t.d. beinni skuldfærslu.
​
Þú berð ábyrgð á að reikna, innheimta og skila öllum sköttum sem tengjast notkun þinni á þjónustunni.
Troupe ber ekki ábyrgð á sköttum sem þú kannt að skulda, en við gætum þurft að miðla upplýsingum/gögnum til skattyfirvalda ef lög krefjast þess og gætur þú því þurft að veita okkur tiltekin gögn.
5. Gildistími og uppsögn
Þessir skilmálar taka gildi þegar þú samþykkir þá, stofnar Troupe-aðgang eða notar þjónustu okkar. Þeir gilda þar til þeim er sagt upp af þér eða okkur. Við kunnum að þurfa að loka eða fresta aðgangi ef brotið er gegn skilmálum, gefnar eru rangar upplýsingar eða ef starfsemi er ólögmæt eða sviksamleg. Þú getur sagt upp þjónustunni hvenær sem er með því að loka aðgangi þínum.Við lok aðgangs falla réttindi samkvæmt þessum skilmálum niður og við gætum, án skuldbindingar, fjarlægt gögn úr kerfum okkar. Uppsögn hefur þó ekki áhrif á óuppgerðar skuldbindingar, svo sem gjöld eða greiðslur sem eru í ferli.
6. Breytingar og tilkynningar
Við gætum uppfært skilmálana eða þjónustuna með eðlilegri tilkynningu í samræmi við lög.
Endurskoðuð útgáfa verður birt á vef Troupe eða innan þjónustunnar. Með áframhaldandi notkun samþykkir þú nýju útgáfuna.
​
Þú samþykkir einnig að fá tilkynningar frá Troupe rafrænt, eftir því sem lög heimila. Rafræn tilkynning hefur sama lagalega gildi og hefðbundin bréfpóstur.
​
Ef okkur eru veittar endurgjafir þá eins og ábendingar/hugmyndir má Troupe nota þær án skuldbindinga gagnvart þér.
7. Þjónustan
Við leggjum okkur fram við að halda þjónustunni gangandi og öruggri, þó geta mögulega komið upp tímabundnar truflanir vegna viðhalds eða uppfærslna. Við berum ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna slíkra atvika.
​
Við uppfærum reglulega þjónustuna til að bæta upplifun notenda, þó án skuldbindingar um að styðja öll kerfi eða tæki.
​
Allur hugverkaréttur að þjónustunni tilheyrir Troupe, þar með talið: útlit og hönnun síðunar, tæknilausnir og logo-ið. Þú hefur afnot af vettvangnum en þú mátt ekki reyna með nokkrum hætti að eyðileggja starfsemi Troupe samkvæmt skilmálum.
8. Gögn og öryggi
Þegar hlaðið er upp efni og það gert aðgengilegt í þjónustunni, veitir þú Troupe heimild til að nota, afrita, birta og sýna það í tengslum við rekstur og kynningu þjónustunnar. Þessi heimild er gjaldfrjáls, ótímabundin, óafturkallanleg og gildir um allan heim.
​
Efnið sem þú hleður upp (notendainnihaldið) er áfram þitt eignarhald, en með því að deila því í þjónustunni veitir þú Troupe rétt til að nota það í þeim tilgangi að reka, kynna og bæta þjónustuna.
​
Þú mátt ekki deila efni sem er rangt, villandi, ólöglegt, móðgandi eða brýtur réttindi annarra.
Troupe áskilur sér rétt til að fjarlægja slíkt efni hvenær sem er.
​
Notkun getur leitt til þess að þú rekist á efni sem gæti þótt móðgandi, Troupe ber ekki ábyrgð á slíku.
​
Þú berð ábyrgð á að virða lög um persónuvernd og að upplýsa þína viðskiptavini um að persónuupplýsingar séu unnar í samstarfi við Troupe. Við meðhöndlum öll gögn í samræmi við persónuverndarstefnu okkar og gildandi lög.
9. Greiðsluþjónustur
Samstarfsaðili Troupe í greiðsluþjónustu er Rapyd, og fara því allar greiðslur sem eiga sér stað inn á vettvanginum í gegnum greiðslukerfi Rapyd.
​
Við vinnum og geymum eingöngu nauðsynleg gögn um viðskiptavina, svo sem upphæd, notendaupplýsingar og tíma. Einnig er vart að taka fram að við meðhöndlum ekki hrá kortagögn.
Troupe uppfyllir ávallt alla PCI-öryggisstaðla, og á það einnig við alla okkar samstarfsaðila og undirvinnsluaðila. Þegar að greiðslur eiga sér stað fara þær fram samkvæmt skilmálum Rapyd.
10. Ábyrgð og lög
Troupe ber enga ábyrgð á þjónustu eða framboði Troupe-ara. Notkun þjónustunnar er á þína ábyrgð og hún er veitt „eins og hún er“.Við ábyrgjumst ekki að þjónustan sé villulaus, en leggjum okkur fram við að leysa vandamál þegar þau koma upp. Við berum ekki ábyrgð á tekjutapi, gagnatapi, viðskiptatapi eða öðrum óbeinum tjónum. Þú samþykkir að bæta Troupe tjón eða kostnað sem hlýst af rangri notkun, brotum á lögum eða skilmálum eða ef aðrir nýta þjónustuna með þínu notendanafni og lykilorði.
Ef kæra eða lögfræðilegur ágreiningur kemur upp, skal það farið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur, nema annað sé samþykkt. Einnig er vart að taka fram að Troupe hefur rétt á því að höfða mál í lögsögu hvar sem þú ert staðsettur.
Ef ágreiningur kemur upp milli notenda og Troupe-ara fyrir utan vettvanginn, er Troupe aldrei hluti af því og ber þar að segja enga ábyrgð á slíku.
11. Skilmálar vettvangs Troupe
Skilmálar vettvangsins gilda fyrir alla notkun á vettvangnum. Troupe er ekki Troupe-ari eða viðskiptavinur hans, heldur vettvangur sem auðveldar Troupe-urum og notendum samskipti og viðskipti.
​
Bókunarsamningar myndast ávallt í gegnum Troupe, í samræmi við þær upplýsingar, og þau skil sem Troupe-arinn framsetur. Til þess að gerast Troupe-ari þarftu að senda fyrirspurn og fá samþykki.
12. Gjöld og verð
Aðgangur að vettvangi Troupe er gjaldfrjáls. Notendur geta skráð sig og haft prófíl á vefsíðunni án mánaðarlegra gjalda eða uppsetningargjalda.
​
Í gegnum þjónustuna Troupe+ geta notendur kynnt þjónustu sína á vettvanginum, tekið við bókunarfyrirspurnum og fengið bókanir í gegnum vefsíðuna. Troupe sér um umsýslu bókana, þar með talið móttöku bókunarfyrirspurna og innheimtu greiðslna frá viðskiptavinum.
​
Troupe innheimtir 10% þóknun af hverri bókun sem fer fram í gegnum vettvanginn. Þóknunin er dregin sjálfkrafa frá greiðslu áður en upphæðin er greidd út til þjónustuaðilans (Troupe-ara).
​
Greiðsla fyrir bókun er greidd út til þjónustuaðilans innan 24 klukkustunda eftir að viðburður hefur átt sér stað, að því gefnu að bókun hafi farið fram samkvæmt samkomulagi.
​
Engin uppsetningargjöld eða föst gjöld eru innheimt fyrir að vera á skrá hjá Troupe. Troupe tekur eingöngu þóknun af bókunum sem fara í gegnum þjónustuna.
​
Troupe áskilur sér rétt til að breyta verðskrá og þóknunum. Allar breytingar á gjöldum eða verðskrá verða birtar á vefsíðu Troupe.
​
Endurgreiðsla
Endurgreiðslur fara eftir afbókunartíma og skilmálum sem settir eru fram hér að neðan.
​
Afbókun af hálfu viðskiptavinar
Ef viðskiptavinur afbókar bókun gilda eftirfarandi reglur:
Meira en 7 dagar fyrir viðburð
Viðskiptavinur á rétt á fullri endurgreiðslu (100%) af bókunarupphæð.
​
Afbókun af hálfu þjónustuaðila
Ef þjónustuaðili (Troupe-ari) getur ekki staðið við staðfesta bókun á viðskiptavinur rétt á fullri endurgreiðslu (100%).
Eftir atvikum getur Troupe einnig aðstoðað við að finna annan sambærilegan þjónustuaðila fyrir viðburðinn.
​
Frestun viðburðar
Ef viðskiptavinur og þjónustuaðili komast að sameiginlegu samkomulagi er heimilt að færa bókun yfir á nýja dagsetningu, án þess að ný bókun fari fram.
​
Greiðslur til þjónustuaðila
Greiðslur fyrir bókanir eru geymdar hjá Troupe þar til viðburður hefur átt sér stað.
Greiðsla til þjónustuaðila fer fram innan 24 klukkustunda eftir að viðburður hefur farið fram, að frádreginni þóknun Troupe samkvæmt verðskrá.
​
Hlutverk Troupe
Troupe starfar sem milliliður fyrir bókanir og greiðslumiðlun. Troupe ber ekki ábyrgð á framkvæmd þjónustu sem veitt er af þjónustuaðilum, heldur sér um umsýslu bókana og innheimtu samkvæmt skilmálum þessum.
13. Skyldur Troupe-ara
Troupe-ari skal:
-
Sinna framboði/þjónustu með fagmennsku og hafa viðskiptavininn í huga.
-
Fara eftir gildandi skilmálum.
-
Birta réttar upplýsingar á aðgangi og uppfæra þær tafarlaust ef breytingar verða.
-
Tryggja réttar upplýsingar um:
-
Framboð
-
Efni aðgangs
-
-
Leiðrétta villur og bregðast við kvörtunum án tafar.
-
Viðhalda gæðum framboðs og þjónustu.
-
Nota vandaðar upphlöður af efni, t.d.:
-
Myndir
-
Hljóðupptökur
-
Myndskeið
-
-
Svara fyrirspurnum eins hratt og mögulegt er
-
Fylgjast daglega með bókunum/eftirspurnum á framboði/þjónustu.
-
Gefa út reikning fyrir hverja bókun ef við á
-
Fylgja öllum lögum, þar á meðal:
-
Neytendalögum
-
Persónuverndarlögum
-
Skattalögum
-
Troupe-ara er óheimilt að:
-
Reyna að afkóða vettvanginn (tilraunir til að komast hjá öryggi eða takmörkunum).
-
Deila spillikóða eða annan skaðlegan hugbúnað.
-
Deila ólöglegu, niðrandi eða skaðlegu efni.
-
Trufla eða hamla notkun annarra (t.d. rask, beiðnaárásir eða önnur röskun á þjónustu).
-
Nota aðgang á annan hátt en hann er ætlaður (misnota eða svíkja notkunarrétt).
-
Brjóta skilmála eða gildandi lög.
-
Hlaða upp ósæmilegu, óviðeigandi eða bönnuðu efni.
-
Birta efni/framboð sem brýtur hugverkarétt þriðja aðila.
-
Hvetja, aðstoða eða veita leiðbeiningar til að fremja einhverja af ofangreindum óheimilum athöfnum.
14. Troupe+
Troupe+ er þjónusta sem gerir þjónustuaðilum innan skapandi greina kleift að kynna þjónustu sína á vettvangi Troupe og taka við bókunarfyrirspurnum í gegnum vefsíðuna.
​
Til að gerast Troupe-ari þarf viðkomandi að senda fyrirspurn til Troupe um skráningu. Umsókn þarf að vera samþykkt af Troupe áður en aðgangur að vettvangnum er veittur. Troupe áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna umsóknum um skráningu.
​
Markmið Troupe er að byggja upp vettvang sem miðlar einungis vandaðari og faglegri þjónustu aðila sem starfa innan skapandi greina.
​
Ef umsókn er samþykkt setur Troupe upp prófíl fyrir þjónustuaðilann á vefsíðunni með þeim upplýsingum sem þjónustuaðili veitir, svo sem kynningu, myndum og öðrum viðeigandi upplýsingum um þjónustuna. Sem Troupe-ari gefur þú öðrum tækifæri til að uppgötva sköpunarkraftinn þinn, gerir þjónustu þína sýnilegri og aðgengilegri og opnar um leið dyr að nýjum tengingum, verkefnum og samstarfi.
​
Þjónustuaðilar sem eru samþykktir á vettvanginn geta tekið við bókunarfyrirspurnum í gegnum Troupe samkvæmt þeim skilmálum sem gilda um bókanir, greiðslur og þóknanir. Þegar bókunarfyrirspurn berst í gegnum vettvanginn tekur Troupe við henni og hefur samband við viðkomandi þjónustuaðila til að kanna hvort viðkomandi sé laus og tilbúinn að taka að sér bókunina.
​
Aðgangur að vettvangi Troupe er gjaldfrjáls. Troupe innheimtir eingöngu þóknun samkvæmt gildandi verðskrá. Með því að samþykkja skilmála Troupe samþykkir notandi einnig gildandi verðskrá og þau gjöld sem kunna að tengjast notkun vettvangsins, þar á meðal þóknun af bókunum sem fara í gegnum Troupe. Einnig kunna að falla til gjöld sem tengjast þjónustu samstarfsaðila ef slíkt á við.
​
Notendur geta hætt notkun vettvangsins hvenær sem er. Þóknun sem þegar hefur verið innheimt vegna staðfestra bókana er þó ekki endurgreidd.
​
Troupe áskilur sér jafnframt rétt til að fjarlægja prófíla eða takmarka aðgang þjónustuaðila að vettvangnum ef skilmálar eru brotnir eða ef notkun þjónustunnar samræmist ekki markmiðum vettvangsins.
​
Ef ákveðin atriði eru ekki sérstaklega tekin fyrir í skilmálum vettvangs Troupe t.d. lög og fleira, gilda almennir skilmálar Troupe.
15. Peningaþvottastefna
Fyrirtækið fylgir gildandi lögum og reglum um varnir gegn peningaþvætti. Við skuldbindum okkur til að koma í veg fyrir að þjónusta okkar sé ekki notuð í ólöglegum tilgangi. Í því skyni áskilum við okkur rétt til að: safna og sannreyna upplýsingar um viðskiptavini þegar það er krafist samkvæmt lögum, fylgjast með viðskiptum og greina óvenjulega eða grunsamlega starfsemi, óska eftir frekari upplýsingum eða gögnum ef við teljum þörf á slíku, hafna, fresta eða stöðva viðskipti sem talin eru brjóta gegn lögum eða þessari stefnu og einnig tilkynna grunsamleg viðskipti til yfirvalda þegar skylt er samkvæmt lögum.
