top of page

HáRún

Indie

30 minCustomer's Place

Service Description

HáRún, eða Helga Rún Guðmundsdóttir, er indí-folk/popp söngvaskáld sem syngur hjartnæm lög á íslensku. Kassagítarinn spilar stórt hlutverk í lögunum, textarnir eru einlægir og kraftmikla röddin dregur hlustandann nær. HáRún dregur innblástur úr ýmsum áttum og málar oft upp myndir í lögum sínum með náttúrunni, en lögin fjalla meðal annars um söknuð, ofhugsanir, og löngunina að tilheyra. HáRún tekur að sér að koma fram með tónlist sína, ýmist ein eða með bandi, en einnig er hægt að biðja um stakar ábreiður (e. cover songs). Hún getur komið fram á ýmsum stöðum við hvaða tilefni sem er og hefur auðvelda uppsetningu ef hún kemur fram ein, hún hefur meðal annars flutt tónlist sína í helli! Hægt er að nálgast fleiri upplýsingar hér: https://linktr.ee/helg4run


Contact Details

(+354)895-2828

troupe@troupe.is

Reykjavík, Iceland


bottom of page