top of page

Dísella Lárusdóttir

1 hCustomer's Place

Service Description

Grammy-verðlaunahafinn Dísella Lárusdóttir hefur unnið hvern listrænan sigurinn á fætur öðrum sem söngkona og hefur unnið að mestu við Metrópólitan-óperuna í New York á sínum starfsferli. Söngur hennar hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda, meðal annars frá New York Times fyrir fádæma nákvæmni og magnaða túlkun. Hún hefur komið fram víða á óperu- og tónleikasviðum í Evrópu og Bandaríkjunum, meðal annars í Carnegie Hall í New York og Disney Hall í Los Angeles ásamt fjölda annarra tónlistarhátíða í Bandaríkjunum. Dísella útskrifaðist með mastersgráðu í söng og söngkennslufræðum frá Westminster Choir College of Rider University árið 2005. Hún kenndi í nokkur ár í Bandaríkjunum þar til söngurinn tók alfarið við um stund. Hún hefur nú starfað sem kennari hjá Listaháskóla Íslands síðan árið 2020 en einnig starfar hún hjá Söngskólanum í Reykjavík. Dísella Lárusdóttir býður upp á einsöng með píanóundirleik við fjölbreytt tilefni, þar á meðal veisluhöld, brúðkaup, árshátíðir og annars konar viðburði. Hún flytur tónlist sem spannar allt frá klassískum sönglögum og aríum yfir í söngleikjalög og dægurlög, allt eftir þeirri stemmningu sem óskað er eftir hverju sinni.


Contact Details

(+354)895-2828

troupe@troupe.is

Reykjavík, Iceland


bottom of page