top of page

BOY

1 hCustomer's Place

Service Description

BOY er hljómsveit sem leikur á ýmiss konar skemmtunum og kann að skapa stemningu sem fólk gleymir ekki. Partýin með BOY eru löngu orðin goðsagnakennd, enda hafa þeir leikið fyrir dansi á öldurhúsum bæjarins við frábæran orðstír. Það sem gerir BOY einstaka er lagavalið, þeir velja óvænt og skemmtileg lög og spila einungis tónlist sem þeir fíla sjálfir, sem skilar sér beint í stemningunni. BOY hefur spilað á fjölda brúðkaupa, afmæla og annarra viðburða þar sem þeir bjóða upp á kraftmikið partý sem stendur yfir í 2-3 klukkustundir og heldur gestum á dansgólfinu frá fyrsta lagi. Einnig bjóða þeir upp á svokallað „setustofu“ gigg, þar sem þeir leika mýkri tónlist sem hentar fullkomlega undir spjall, fordrykki eða rólegri stemningu. Meðlimir BOY eru þeir Hrafnkell Már, Leó Ingi, Jóhann Jóns og Logi Marr. Þeir hafa verið í hljómsveitum á borð við Johnny and the Rest, Babies, Lily of the Valley, Blakkát, Shakes o.fl. og hafa spilað lengi saman. Spilagleðin er það sem einkennir BOY einna helst.


Contact Details

(+354)895-2828

troupe@troupe.is

Reykjavík, Iceland


bottom of page