Persónuverndarstefna
Vinnslusamningur um persónuupplýsingar (DPA)
milli Tone ehf. („Troupe“ eða „vinnsluaðili vettvangs“) og Troupe-ara („ábyrgðaraðili“)
Útgáfa: 1.0
1. Hlutverk
Þessi samningur fjallar um vinnslu persónuupplýsinga sem Tone ehf. framkvæmir fyrir hönd Troupe-ara í tengslum við rekstur vettvangs Troupe og tengdra þjónusta.
-
Ábyrgðaraðili (Troupe-ari) er sá aðili sem nýtir vettvanginn til að kynna, selja eða bjóða þjónustu sína innan skapandi greina.
Vinnsluaðili er Tone ehf. sem rekur vettvang Troupe, hýsir gögn, sér um tæknilega úrvinnslu og tryggir virkni þjónustunnar.
Markmið samningsins er að tryggja að öll vinnsla fari fram í samræmi við almennar persónuverndarreglurgerðir, lög um persónuvernd og persónuupplýsingar.
2. Tilgangur og umfang vinnslu
Troupe vinnur persónuupplýsingar eingöngu til að veita og viðhalda þjónustu vettvangsins fyrir ábyrgðaraðila.
Tilgangur vinnslu er meðal annarst til:
-
Að hýsa og varðveita gögn sem tengjast notkun vettvangsins svo sem aðgangi, bókunarupplýsingum, samskiptum o.fl.).
-
Að miðla bókunum, fyrirspurnum og samskiptum milli ábyrgðaraðila og viðskiptavina.
3. Að senda tilkynningar eða áminningar fyrir hönd ábyrgðaraðila, s.s. með tölvupósti, SMS eða annarskonar-tilkynningum.
4. Að veita tæknilega aðstoð og viðhalda öruggri virkni kerfisins.
5. Að framkvæma nauðsynlega frammistöðumælingu og öryggisvöktun til að tryggja áreiðanleika þjónustunnar.
3. Flokkar gagna og skráðra einstaklinga
Skráðir einstaklingar:
- Ábyrgðaraðilar – Viðskiptavinir ábyrgðaraðila (t.d. þeir sem bóka þjónustu ábyrgðaraðila) og starfsfólk eða umboðsmenn ábyrgðaraðila sem nota vettvanginn.
Flokkar persónuupplýsinga:
-
Auðkennis- og samskiptaupplýsingar: nafn, netfang, símanúmer.
-
Bókunarupplýsingar: tímasetning, verð, staður, þjónusta, mæting eða afbókun.
-
Viðhengi eða myndir sem við hlöðum upp fyrir hönd ábyrgðaraðila.
-
Kerfisgögn og notkunarskrár (t.d. innskráningar, breytingar og aðgerðir).
Greiðslugögn að því marki sem nauðsynlegt er til uppgjörs (Troupe vinnur ekki með hrá kortanúmer).
4. Lagagrundvöllur vinnslu
Vinnslan byggir á eftirfarandi lagagrundvelli:
-
Samningi milli ábyrgðaraðila og Troupe.
-
Lögmætum hagsmunum við rekstur, öryggi og viðhald kerfisins.
-
Lagaskyldu ef hún á við, t.d. varðveislu reikninga.
5. Leiðbeiningar og skyldur aðila
Troupe vinnur persónuupplýsingar eingöngu í samræmi við skriflegar eða rafrænar leiðbeiningar frá ábyrgðaraðila og í þeim tilgangi sem lýst er í þessum samningi.
Ef Troupe telur að leiðbeiningar ábyrgðaraðila brjóti gegn lögum eða reglugerðum mun fyrirtækið tilkynna það án tafar.
6. Trúnaður og öryggi
Allir starfsmenn og samstarfsaðilar Troupe sem hafa aðgang að persónuupplýsingum eru bundnir trúnaðarsamningi. Troupe tryggir með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum að persónuupplýsingar séu ávallt varðar gegn ólögmætum aðgangi, breytingum eða eyðingu. Þessar ráðstafanir fela meðal annars í sér öryggislausnir sem miða að því að vernda gögnin fyrir óheimilum aðgangi, óheimilri notkun sem og gagnatapi.
Troupe vinnur meðal annars samkvæmt eftirfarandi öryggisráðstöfunum:
-
Aðgangsstýringum og öruggri auðkenningu notenda.
-
Reglulegum öryggisafritum og prófunum á öryggiskerfum.
-
Skilgreindum verkferlum fyrir greiningu, skráningu og viðbrögð við öryggisatvikum.
7. Öryggisbrot
Verði öryggisbrot sem hefur áhrif á gögn ábyrgðaraðila skal tilkynna það til Troupe án tafar og eigi síðar en innan 72 klukkustunda frá því að brotið varð ljóst.
Tilkynning skal innihalda:
-
Lýsingu á eðli brotsins.
-
Mögulegar afleiðingar þess.
-
Upplýsingar um þær aðgerðir sem þegar hafa verið framkvæmdar og frekari ráðstafanir sem fyrirhugaðar eru til úrbóta.
Troupe aðstoðar ábyrgðaraðila, eftir þörfum, með tilkynningu til Persónuverndar og/eða til skráðra einstaklinga.
8. Réttindi skráðra einstaklinga
Troupe veitir ábyrgðaraðila aðstoð við að uppfylla skyldur sínar samkvæmt GDPR um réttindi skráðra einstaklinga.Svo sem beiðnir um:
-
aðgang að eigin gögnum.
-
leiðréttingu eða eyðingu upplýsinga.
-
takmörkun vinnslu eða gagnaflutning.
-
andmæli vinnslu.
9. Undirvinnsluaðilar
Troupe má fela undirvinnsluaðilum ákveðin verk, svo sem hýsingu, sendingar eða greiningar, að því gefnu að:
-
undirvinnsluaðilinn sé bundinn trúnaði og fari eftir kröfum Troupe.
-
Troupe beri áfram fulla ábyrgð á allri vinnslu gagnvart ábyrgðaraðila.
-
ábyrgðaraðila sé tilkynnt fyrirfram ef nýr undirvinnsluaðili bætist við.
Allir undirvinnsluaðilar Troupe koma fram í fylgiskjali A okkar. - Ef við fáum einhverja þá skrifum við það í fylgiskjal A.
Greiðsluþjónustur eins og ayden og teya starfa sem sjálfstæðir ábyrgðaraðilar varðandi greiðslugögn og þeir eru með sína eigin skilmála og öryggisreglur. Þeir myndu þá ekki vera undirvinnsluaðilar til dæmis.
10. Flutningur gagna utan Evrópska efnahagssvæðisins
Troupe mun almennt halda vinnslu og geymslu persónuupplýsinga innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).Ef nauðsyn krefur að flytja gögn eða veita aðgang að þeim utan EES, tryggir Troupe að slíkur flutningur byggist á gildum lagagrundvelli, svo sem staðluðum samningsákvæðum (SCC) eða persónuverndarramma ESB–Bandaríkjanna.
11. Geymsla og eyðing gagna
Við lok þjónustusambands má Troupe varðveita persónuupplýsingar í allt að 24 mánuði, eftir þann tíma verða gögnin eydd eða nafnlaus.
12. Eftirlit og úttektir
Ábyrgðaraðili getur óskað eftir skriflegum upplýsingum eða úttekt um hvernig vinnsluaðili uppfyllir skyldur sínar samkvæmt þessum samningi og persónuverndarlöggjöf. Slíkar úttektir skulu fara fram með sanngjörnum fyrirvara og án þess að raska öryggi, trúnaði eða rekstri Tone ehf. eða annarra viðskiptavina fyrirtækisins.
13. Lög, ábyrgð og varnarþing
Samningurinn lýtur íslenskum lögum. Komist aðilar ekki að samkomulagi skal mál höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Hver og einn fyrir sig ber ábyrgð á eigin brotum gegn persónuverndarlöggjöf.
14. Gildistími
Þessi samningur gildir á meðan Troupe vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd ábyrgðaraðila í tengslum við notkun vettvangsins.
15. Samskiptaupplýsingar
Tone ehf.
[Sími: 7732774]
[Túnbrekka 18, 355 Ólafsvík]
[Netfang: troupe@troupe.is]
[KT: 411225-0620]
Fylgiskjal A -- Undirvinnsluaðilar Troupe
Undirvinnsluaðili Hlutverk Hýsingarland Athugasemd
mail.google.com Sending tilkynninga EES / utan EES Notað til að senda staðfestingar
og áminningar
www.wix.com Gagnageymsla og EES Dulkóðuð hýsing
netþjónusta
(hýsingaraðili)
usercentrics.com Heldur utan um EES Notað til að stýra
vafrakökur („banner“) samþykkisstillingum (CMP)
rapyd.net Greiðsluúrvinnsla, EES Notað til að vinna bókanir, frysta
vörslureikningar og inneign, greiða út til listamanna og
„delayed payouts“ framkvæma endurgreiðslur
Fylgiskjal B -- Nánari lýsing á vinnslu
-
Tilgangur: rekstur, samskipti, bókanir, greiðsluuppgjör og öryggi.
-
Flokkar gagna: sjá 3. gr.
-
Flokkar skráðra einstaklinga: sjá 3. gr.
-
Varðveislutími: meðan notendaaðgangur eða þjónustusamband er virkt + lögbundin varðveisla gagna.
-
Vinnsluaðgerðir: fela í sér öll þau ferli sem beitt er við meðferð persónuupplýsinga, svo sem söfnun, skráningu, skipulagningu, miðlun að beiðni, takmörkun og eyðingu gagna.
